Smá stund fyrir þig

Það er eitthvað sérstakt við augnablikið þegar allt fær aðeins að hægja á sér.

Stundin er rólegt horn hjá Agndofa þar sem þú getur sest niður með heitan bolla, andað aðeins og gefið þér smá rými.

Einföld leið til að laga kakóið

• Bættu vatni eða jurtamjólk í mjólkurflóara og kveiktu á honum.

• Settu vel saxað ceremonial kakó út í og leyfðu því að bráðna rólega saman við.

Flóarinn hitar drykkinn og gerir kakóið silkimjúkt og mjúkt á bragðið.

• Þú getur notið þess eins og það er eða bætt við kryddum, hunangi eða öðru sem hlýjar þér. Smá salt getur líka hjálpað til við að draga fram bragðið.

• Svo kemur mikilvægasti parturinn — að setjast niður og gefa stundinni smá pláss 🤎

Ef þú átt ekki mjólkurflóara, engar áhyggjur. Það eru fleiri góðar leiðir til að útbúa ljúfengan kakóbolla.

Stundin

Stundin byrjar oft á meðan cacaoið bráðnar.

Í rólegri hreyfingu, ilminum sem fyllir rýmið og augnablikinu þegar allt fær aðeins að hægja á sér.

Hér finnur þú stutta hugleiðslu með Rúnari til að hægja aðeins á og anda dýpra.

  • 1. Hægja á

    Brugga kakóið hægt.
    Kveikja kannski á tónlist eða kerti.
    Leyfa sér að hægja aðeins á sér meðan kakóið bráðnar.

  • 2. Koma sér fyrir

    Setjast þægilega.
    Halda utan um bollann.
    Finna hitann og ilminn.

  • 3. Fyrsti sopinn

    Drekka rólega.
    Leyfa sér að vera aðeins meira til staðar í augnablikinu.

    Kannski spyrja sig:

    Hvernig líður mér í dag?
    Hvað þarf ég mest á að halda núna?

  • 4. Vera

    Hlusta.
    Anda.
    Skrifa.
    Hreyfa sig.
    Eða einfaldlega sitja í kyrrð.

    Engin rétt leið.
    Þetta er þín stund.

  • 5. Með sér áfram

    Þakklæti.
    Nokkrir djúpir andardrættir.
    Að taka róna með sér inn í restina af deginum.