Ritual • Ró • Tenging
Smá stund fyrir þig
Það er eitthvað sérstakt við augnablikið þegar allt fær aðeins að hægja á sér.
Stundin er rólegt horn hjá Agndofa þar sem þú getur sest niður með heitan bolla, andað aðeins og gefið þér smá rými.
Einföld leið til að laga kakóið
• Bættu vatni eða jurtamjólk í mjólkurflóara og kveiktu á honum.
• Settu vel saxað ceremonial kakó út í og leyfðu því að bráðna rólega saman við.
Flóarinn hitar drykkinn og gerir kakóið silkimjúkt og mjúkt á bragðið.
• Þú getur notið þess eins og það er eða bætt við kryddum, hunangi eða öðru sem hlýjar þér. Smá salt getur líka hjálpað til við að draga fram bragðið.
• Svo kemur mikilvægasti parturinn — að setjast niður og gefa stundinni smá pláss 🤎
Ef þú átt ekki mjólkurflóara, engar áhyggjur. Það eru fleiri góðar leiðir til að útbúa ljúfengan kakóbolla.
Stundin
Stundin byrjar oft á meðan cacaoið bráðnar.
Í rólegri hreyfingu, ilminum sem fyllir rýmið og augnablikinu þegar allt fær aðeins að hægja á sér.
Hér finnur þú stutta hugleiðslu með Rúnari til að hægja aðeins á og anda dýpra.
Þitt heimaritúal
-
1. Hægja á
Brugga kakóið hægt.
Kveikja kannski á tónlist eða kerti.
Leyfa sér að hægja aðeins á sér meðan kakóið bráðnar. -
2. Koma sér fyrir
Setjast þægilega.
Halda utan um bollann.
Finna hitann og ilminn. -
3. Fyrsti sopinn
Drekka rólega.
Leyfa sér að vera aðeins meira til staðar í augnablikinu.Kannski spyrja sig:
Hvernig líður mér í dag?
Hvað þarf ég mest á að halda núna? -
4. Vera
Hlusta.
Anda.
Skrifa.
Hreyfa sig.
Eða einfaldlega sitja í kyrrð.Engin rétt leið.
Þetta er þín stund. -
5. Með sér áfram
Þakklæti.
Nokkrir djúpir andardrættir.
Að taka róna með sér inn í restina af deginum.